Velkomin á síðuna :)

trallala

05.03.2007 11:52:24 / Erla:)

Quit!

Well, kominn tími á að ég hætti með þessa síðu og opna aðra...

Síðan er: www.blog.central.is/only4u


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 18:38:07 / Erla:)

Sander Kleinenberg!

Oh, hell yeah! Here we come ;) Á föstudaginn (eftir einungis 4 daga) keyrum við Beggi, Jón og Helena babe til Reykjavíkur ;) Ég fékk meira að segja Audi-inn lánaðann :D og Ásdís ætlar að flúga (öfunda hana :D ) og svo um kvöldið förum við á Sander Kleinenberg! Ég er búin að hlakka til í svona 2 mánuði í þetta marr! Úff, vá hvað það verður mergjaðslega gaman :haha: svo á laugardeginum þá förum við Ásdís öruglega í búðarráp í þynkunni og djömmum svo öruglega meira á laugardeginum og komun svo heim á sunnudeginum ;)

Ælaði bara að láta ykkur öfunda mig :D Híhí :P En ég segi ykkur mikilu betur frá þessu þegar ég kem heim ;)

Blessó :* :* .*


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 20:01:22 / Erla:)

:D:D

Um helgina kom hún Agnes Sara frá Reykjavíkinni :D Ég fór og hitti þær Söndru og svo föstudagskvöldið þá fóru þær byttur í bekkjapartý ;) Ég var bara á chillinu heima með Begga að horfa á DVD :)

Svo á Laugardaginn þá komu þær Agnes og Sandra til mín svona allþokkalega timbraðar og mjög lítið sofnar. Petrea og Sara komu svo líka til mín. Við gerðum okkur til og byrjuðum að drekka og fara í drykkjuleiki og svona ;) Svo þá var hringt í eikkað fólk, og korteri seinna hringdu einhverjar allt aðrar 2 manneskjur í mig og spurðu mig hvort að það væri partý hjá mér 8| haha, vá þetta er ekki lengi að fréttast :haha: En þetta átti bara að vera svona girls night out ;) En það breyttist aðeins :P Fullt af fólki hérna og geggjuð tónlist allir blindfullir!! Þetta var GEGGJAÐ kvöld! :haha: Allavega það sem ég man eftir. En ég samt var mjög leiðinleg við eina manneskju :^) sorry!!

Ég ætlaði að skrifa miklu meira en ég man ekki meira í augnblikinu ;) Skrifa í skoðanir og í gestó!! :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 23:21:37 / Erla:)

NEW CARS :D and pictures

Jæja það er bara allt að gerast í bílamálum á þessu heimili ;) Í gær þá keyptu mamma og pabbi handa mér Nissan Almera, alveg ágætis fyrsti bíll bara ;) En það er ekkert bye bye við Audi, neinei! Ég stel honum samt svona um helgar og svonna ;) En svo þá ætlar pabbi að kaupa sér Lexus jeppa á morgunn :P Geeeeggjað flottur, leðurklæddur og alles :D

En á föstudaginn var ég driver fyrir Söndru og Petreu og Sandra frænka var með, það eru MYNDIR af því í myndaalbúminu, undir bíladjamm ;) Endilega tjékka á því :P (vá hvað ég er dúleg) og guð minn góður ég hef aldrei hlegið jafnmikið á ævi minni eins og þarna. Sandra Godsexy múnaði á mesthötuðustu manneskju í heimi :D bwahahahaha, við grenjuðum úr hlátri allar :haha: Þú færð sko 10 fyrir þetta elskan :* :D

Svo í gær þá fórum við Sandra frænka á rúntinum með Orra og chilluðum bara :P

En ég nenni ekki að skrifa meira. KVITTA Í GESTÓ! Hún er orðin riðguð


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 20:03:25 / Erla:)

MYNDIR!!! :D

Vá! hvað ég er búin að vera óggislega dúleg :D Ég er búin að setja inn fullt af myndum :D ég bjó til 2 albúm, annað heitir margt mögulegt og þar eru bara myndir að fólki og svona ;) og svo hitt er með breytingum á baðherberginu okkar óggislega flott skomm ;) Reyndar er dálítið langt síðan það var gert svona mánuður eða svona, en só what! So tjékk it out darlings ;)

En jamm, annan í jólum var mikið djamm ;) Ég og Mæja fórum í partý hjá e-ð gaur og þar voru Beggi og Garðar líka og þar var alveg slatti af fólki þar, og það var bara tekið á móti okkur í hurðinni með bjór og læti bara og dælt í okkur ;) og þetta var bara þvílíkt pylsupartý og ég mæja vorum einu stelpurnar, hehe. Svo var skellt sér niður á Capone og 1929 á no request (eða hvernig sem það er skrifað) Váááá! Það var snilld á þessu! :haha: Geggjað gaman :P og svo þá hittum við Beggi Camillu fyrir utan og hún skutlaði okkur heim :) takk ástin :*

En þetta er nóg í bili :) Kíkkið á myndirnar og skrifið í gestó ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.12.2006 02:38:52 / Erla:)

BLOGG, (tileinkað Huldu)

Humm, ég veit bara ekkert hvað ég á að skrifa um...Jújú, ég segi bara svona hluta af því sem ég fékk í jólagjöf :D

Frá mömmu og pabba fékk ég geggjað flottan nýjan Sony Erikson síma, frá Önnu systu og Heimi fékk ég úr ;) geggjað flott sko :P og frá honum Begga mínum fékk ég Puma peysu, bol úr Fargo og hálsmen sem grafið er í Erla og aftaná stendur þinn Beggi, (ohh, só kjút!), frá fjölsk. Begga fékk ég nudd og ljós í Abaco og svo fékk ég fullt af eitthverju fleira dóti :)

Haha, og svo á aðfangadagskvöldinu þá fórum við Anna, Einar og Miriam (og svo bættist Trausti við í lokin) í eitthvað leirspil. Semsagt að maður átti að leira það sem maður dró og hinn átti að gíska, guð hvað það var hlegið mikið. (sérstaklega þetta með SKALLANN "einkahúmor :P")

Svo kl. 3 í dag þá fórum við Beggi og öll familían til ömmu gömlu í mat. Ó guð minn góður hvað ég át mikið:!: Það verður bara ég og ræktin eftir áramót, ehm, og kanski smá einbeiting að skólanum :^) Segi ekki af hverja hér...

Já og svo ætla hann Beggi að yfirgefa mig, puff! Neinei, ekki það lengi, hann fer á sjó morguninn eftir annan í jólum og kemur aftur heim 31 des. :P

En jamm, ég var bara alveg hugmyndasnauð þegar ég byrjaði að skirfa og vissi nákvæmlega ekkert um hvað ég ætti að skirfa en svo kom þetta bara allt saman :D Vitiði um hvað ég er að tala? :P


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 19:17:35 / Erla:)

Vá, hvað ég er dúleg :D

Síðasta helgi var mjöög mikil djammhelgi ;) Á föstudaginn þá fórum við Hulda með Mæju okkar á rúntinn. Svo þá fórum við á Capone og djömmuðum og dönsuðum eins og við ættum lífið að leysa :D hehe

Svo á Laugadaginn þá fórum við til Camillu :* Við keyptum okkur í bollu og byrjuðum að drekka kl. 5 um daginn ;) Svo komu fleiri stelpur til Camillu, við hlustuðum á geggjaða tóna og drukkum ;) Svo fórum við niðurá 1929 (við hliðiná Capone) Það var svona klúbbakvöld þar ;) Guð hvað það var geggjað gaman þar :D Hehe, mjög margar sögur þaðan...Humm..Hulda? :D haha...æji þú ert svo rugluð dúlluz :P

En vó ég er búin að fara alltof mikið í ljós síðastliðið ég fór á mánudaginn, þriðjudaginn, miðvikudaginn og svo var beggi að spurði mig hvort ég vildi fara í dag :D ég afþakkaði, verð aðeins að fara að chilla á þessu ljósastandi

En here you go! ég gerði blogg :D KOMMENTA!!

Þangað til næst...blessó! ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 16:49:24 / Erla:)

FINALLY!! :P

Úppss.... Ég var bara búin að steingleyma að ég ætti heimasíðu næstum því :P Nú jæja en Óla var nú nokkuð góð við að halda henni uppi...

Ég er komin með vinnu í Veganesti (Esso hringtorg) og er að vinna með henni Öddu minni :D og svo er ég líka byrjuð að vinna í Ice in a bucked ;) Það er bara mjög fínt, hlakka allavega til næstu mánaðarmót :D Fyrstu launin mín í 3 eða 4 mánuði :/ Úff...það er laaangur tími.

Svo eru bara prófin á næsta leiti :/ Ekkert stuð í því! Fyrsta prófið mitt er 1. des. og síðasta 11. des. og ég fer í 5 próf! Mér finnst þetta svindl! ég þarf alltaf að taka mörg próf :S En marr verður bara að ná sem mesta...:$

Á föstudaginn var ég með Begga hjá sköptunum, fór svo bara heim...:!: á laugardaginn var ég driver fyrir stelpurnar, en svo bara beiluðu þær 8| Beilerar :!:  (þær voru alltaf að segja að ég myndi beila) þannig að ég var bara að rúnta með Mæju :)

En ég minni á að Galantinn er ennþá til sölu ;) (kem með mynd seinna;) ) 620.000 kjell!! En jamm, það sem það var bakkað á hann um daginn þá er hann að fara í viðgerð, þannig að það verður barasta allt nýtt og flott á honum :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 21:18:50 / Erla:)

I´m back :D

Vó...ég hef bara ekki bloggað í meira en mánuð þannig að ég ætla að skella einu inn núna :D

Um helgina þá gerði ég nú bara ósköp lítið, nema hvað á föstudaginn þá fór ég í Sjallann með Ólu, það var geðveikt stuð marr ;) Jamm svo fór ég bara heim óvenju snemma af ástæðum sem ég ætla ekki að nefna hérna :D tíhí:P

En svo á laugardaginn þá vorum við Beggi búin að vera saman í 4 mánuði ;) Þannig að við tókum því bara rólega og vorum bara heima hjá mér það kvöld :)

Á Sunnudaginn fórum við Beggi út að labba með hundinn þeirra í Kjarnaskógi :P heh, og svo þá fór ég bara e-ð að rúnta með Ólu og svona.

En jamm, þið sem hafið sér mig á Galantinum, bara svona segja ykkur það að hann er til sölu ;) Hann var settur á 700 þús. en Einar bróðir sem á bílinn (nema bara hann er í rvk. þess vegna er ég alltaf á bílnum) hann myndi sætta sig við að fá 620. þús. fyrir hann ;) Think about that ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 14:49:08 / Erla:)

:D

Veiii :D Ég er komin með bílpróf!! :D Ég náði bæði verklega og bóklega prófinu í fyrstu tilraun ;) Svona eru snillingar :D

En svo er það Danmerkurferðin :) Það eru nokkrar myndir sem ég setti inn, frá henni :) Þær eru bara í myndunum okkar :) Ég fór með Önnu systur, mömmu, pabba og bróður mömmu (Viðar). Fyrsta daginn þá löbbuðum við á Strikinu og fórum svo í tívolíið:D Vááá...það var geggjað gaman :haha: ég fór í öll stærstu tækin og Anna systir með mér :) Við fórum meira að segja 2 sinnum í rússíbannann, ekkert hræðir mig :P Um kvöldið var Gavin DeGraw með tónleika í tívolíinu :D Hann er æðislegur :* þetta var geggjað stuð ;) Náði meira að segja mynd af honum :P

Annan daginn þá ætluðum við Anna að labba niður í Fields (sem er svona risa mall) og við löbbuðum frá Tívolíinu!! 8| Shit hvað þetta var langt!! Við vorum sko með kort og fórum eftir því og þegar við vorum komnar á staðinn sem þetta átti að vera á þá sáum við ekkert :S Við spurðum til vegar og þá sagði maðurinn að það væri miklu lengra í burtu og við litlum betur á kortið og þá stóð svona "Fields" og það var ör frá því og hún benti útaf kortinu 8| Við vorum ekki happy og héldum áfram að labba og það var ekki taxa að sjá, nema bara e-ð sem var fullur. Þetta voru by the way 10 kílómetrar!!! Og við vorum ekki á þægilegum skóm, Anna var komin með blöðrur útum allt á fótunum og ég var komin með gríðalegt hælsæri á báðar fætur, og við löbbuðum ekki við höltruðum bara :D svo þá var Anna búin að tala um svona þægilega skó sem hún ætlaði að kaupa sér, þegar við komum loksins inn þá sagði Anna sjáðu! ég bara hvað eru það skórnir? Anna sagði þá Nei! Enn betra, plástrar! hahahaha :D æji mér fannst þetta bara svo findið :D

Svo þá er ég varla að nenna að blogga meira en jæja... Við vorum alltaf úti að borða, og ég var aldrei svöng, ég held að þau hafi verið að reyna að fita mig meira eða eitthvað :P Og svo þá keypti ég mér svo ógeðslega mikið af fötum að það er ekki findið sko :S og eyddi svo miklum penningi... Já og þess vegna er ég ekki að fara til Spánar, ég er búin að borga ferðina en ég ætla samt ekki og ég fæ ekki endurborgað, svona er að vera svona mikill fæðingarhálviti eins og ég!!! :evil: Þá fer sá peningur bara gjörsamlega í vaskinn!!! Ég hef ekki orðið svona fátæk síðan í 5. bekk ég er ekki að djóka með þetta 8| Hræðó sko, nú jæja það þýðir ekkert að vera að tala um það meira...

Svo er það bara skólinn á miðvikudaginn, allt að gerast! Mig er meira að segja byrjað að hlakka smá til, sko að sjá alla krakkana! Ekki að læra! ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 17:53:47 / Erla:)

Versló og Danaveldi...

Jæja núna er helgin sem marr er búinn að vera að bíða eftir í heilt ár búin! og þá er það bara að bíða í heilt ár aftur eftir versló ;) Á föstudaginn þá fór ég niður í bæ og komst fyrst ekki inn í Sjallann, þannig að ég fór bara á Kaffi Ak.Svo þegar leið á kvöldið fór ég í sjallann. Hitti svo Begga og fór e-ð með honum og ég fór að sofa kl. sirka 10:30 og fór að vinna kl. 12 var semsagt að sofa í einn klukkutíma :S  Á laugardeginum þá fór ég á Ka ballið og gerði svo ekkert meira. Á Sunnudaginn þá fór ég fyrst á Ka ballið svo niður í bæ á Sjallann, fór svo á Kaffi ak og svo í Kjallarann...en það besta er að ég fékk frítt inná Sjallann, Kaffi Ak og Kjallarann ;) Úff...svona er bara að vera ég :D Erfitt líf :D En helgin var hjá mér var svona upp og niður, hefði getað verið miklu betri...

En svo þá er það bara Danmörk á morgunn marr, fer kl. 10 um kvöldið! Það verður stuð þar, en ég kem með sögur þaðan þegar ég kem aftur heim ;) Mér fannst bara nokkuð nauðsinlegt að skrifa svona nokkuð orð hérna áður en ég færi :)

Blessó ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 00:32:33 / Erla:)

Hæhæ =)

Vá það er orðið svolítið langt síðan að ég hef bloggað :P Mætti hala að ég og Óla skiptumst á að vera duglegar :D En um þessa helgi þá gerði ég ekki neitt á fös. og í gær þá fórum við Beggi heim til Hafþórs (bróður Begga) að passa fyrir hann :)

Úff...ég trúi því varla að versló sé næstu helgi :D Vá þetta er allt að koma marr!! :haha: OOOOggggggg......Svo á ég afmæli á morgun :D:D Semsagt þann 1. ágúst :D En ég fæ samt ekki bílprófið á afmælisdaginn....because I was so stubit! ég byrjaði alltof seint í ö2... Well..kjáni ég.. En ég tek samt bóklega prófið þann 3. ágúst og svo verklega bara sem fyrst þegar ég er búin að taka alla ökutímana :)

EENNN....Svo er ég að fara til Danmerkur þann 10. ágúst :D og verð til 15. ágúst :D Það verður alveg meegastuð með familíunni ;) Og við förum öruglega á Gavin DeGraw sem verður að syngja í tívolíinu í Köben 11. ágúst og við ætlum pottþétt á það :haha: Oggg...svo er ég öruglega líka að fara til Spánar þann 21. ágúst og verð til 4. september :D Vá, bara 2 útlönd á einum mánuði..Vá hvað ég á samt eftir að sakna allra vinanna og sérstaklega Begga :( En ég fer með Huldu, bróðir hennar og kærustu hans og svo kemur Óla kanski líka með :D

En ég blogga öruglega e-ð á næstunni aftur :) Blessó =)


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 10:43:14 / Óla:)

Gúsen pæ!

Já mér fannst það bara góð hugmynd hjá mer að blogga 2* í röð:P mer fer framm:)

En já.. helgin liðin hjá! Huldan Okkar átti afmæli og heyrið ég sögur um að það hefði verið djammað feitt:D.. dj.Skari o.sf.!  það hefði verið gaman að djamma með ykkur en ég ver í RVK hjá Matta mínum:*  gaman að segja frá þvi að ég átti flug klukkan 7.30 um morgunin og átti að vinna klukkan  12 og það var ófært eitthvað á akureyri að ég flaug ekki fyrr en 12.20.. vá hvað ég var orðin þreitt á því að bíða:evil: gott og blessað með það ég er komin heim:).. en eins og kanski ekki allir vita þá á hun ERLA LIND AFMÆLI 1. Águst:P love you ELF:* just nokkrir dagar til undirbunigar fyrir ykkur að kaupa eitthvða fallegt handa henni:D.. ég er búin:P híhí:D

En já elskurnar ég nenni ekki aðbloggar meir:D..

Ólan bloggar:D


» 9 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 10:28:54 / Óla:)

Góður dagur fyrir snókalla...!

Góðan dag:)

Já það er kanski komin góður tíma að ég fari að blogga smá:D mörgum fynnst ég bara blogga mjög lítið 8| hehhe:P..

Svona eins og vanalega þá er ekki mikið búið að splungrast hjá mér á síðustu dögum:S nema kanski vinna..! Og svo Matti minn kom til Akureyrar til að hitta mig:P og fjölskylduna mína:D og auðvitað leist þeim frábælega á strákinn minn:P og já eins og sumir vita var ég á mótorhjóli alla helgina með honum:* ég er barr nokkuð góð meðan við byrjanda að sitja aftan á hjólinu sko:$ nei grín:D híhí:D

En já svo var það eitthað dj fastival"hvernig sem það er skrifað" í sjallanum og auðvitað skellti maður sér á það:P jééé... úff en ég kemst ekki yfir það hvað var gaman á þessu mótorhjóli:D aðeins þægilegra en fjórhjólið sem að við fórum í sveitini hjá öddu:D og svo segja að ég hafi öskrað mikið, veistu það er ekki á hverjum deigi sem ég læt líf mitt upp í hendur 11 árs drengs:D og já ég var skít hrædd og viðurkenni það með stolti! ekki allir sem hefðu þolað þennan bíltúr á þessu fjórhjóli sko:D:D.. en samt gett gaman á þessu apparati:D

En ég veit bara ekkert hvað ég á að blogga um :haha: nema kanski að tilkinna það að það VANTAR NAUÐSINLEGA STARFSÓLK Á SUBWAY AKUREYRI. hægt er að sækja um á subway ak. og á netinu www.subway.is :P heh:D held að það verður ráðið um 18-20 júl.:)

Já Já the blogg is búið:P

Óla:)

P.s. lag vikunar pott þétt.... Usher - you´ll be in my heart (Tarsan lagið:P) tekk itt:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 23:36:57 / Erla:)

Road trip ;)

Jæja það mætti nú kalla það smá Road trip sem við Óla gerðum um helgina ;) Við fórum með Ástu (systur Ólu), Pétri (bróður Ólu) og Einari (pabba Ólu) til Hafnar í Hornafirði á svona lítið ættarmót þar :) Sem er by the way ógeðslega langt í burtu... En það var stuð þar sko ;) Við djömmuðum smá, fórum í sund og svo kom Adda í heimsókn til okkar :)

Og við fórum með Öddu útí sveitina sem hún er að vinna í (og hefur verið að vinna í í allt sumar) og þar er maður kominn hálfa leiðina til Reykjavíkur (sem ferðinni okkar var heitið ;) ) En á leiðina í sveitina hennar Öddu þá sáum við að það var verið að gera björgunaraðferðina við mann, það var maðurinn sem dó sem átti heima hérna á Akureyri :(

En í sveitinni hennar Öddu þá fórum við á fjörhjól, Ó my god! Ég og Óla dóum næstum 8| En vá hvað þetta var shit gaman :D :haha: Adda fór með okkur í móa og e-ð þannig að þetta var bara endalaust upp og niður upp og niður, og mjög bratt! Við vorum sko alltaf 3 á því í einu :D híhí:P og svo þessi klikkaði 11 ára strákur, hann var klikk, við Óla áttum von á því að þetta væri það síðasta sem við myndum gera, við duttum svona næstum því alltaf af :D en það gerðist aldrei :D Sem betur fer :P En ó já ég sagði það að hann var 11 ára! :haha:

Svo kom mamma hennar Ólu og náði í okkur og héldum ferð okkar áfram til Reykjavíkur :) Váááá... hvað ég eyddi ÓGEÐSLEGA miklum peningi þanna fyrir sunnan 8| og það sko bara á Laugarveginum og svo fórum við Óla í Kringluna en við fórum bara í 4 búðir þar, og svo vorum við farnar. Sem betur fer annars ætti ég ekki neinn pening núna :S Ég keypti mér svona meðal annars 3 Diesel buxur, Diesel jakka, Nikita jakka og svo fullt af svoleiðis drazli ;)

Svo fór Óla heim í gærkveldi því að hún átti að fara að vinna kl. 4 í dag, og ég kom bara núna kl. 9 með Önnu systur og Heimir kærasta hennar sem voru að koma frá Tenerive (ein að Kanani eyjunum) og ógeðslega eru þar brún. I am so going to ljós tomorrow :D Svo fæ ég bílprófið 1. ágúst (minna en mánuður þangað til ;) ) Ó my god hvað ég hlakka til!

Ég og Óla viljum votta samúð okkar til allra þeirra sem þekktu annað hvort stelpuna eða manninn sem bjuggu hérna á Akureyri og dóu um helgina

En Vá, þetta er öruglega lengsta blogg sem ég hef gert, og ég efast um að einhver hafi lesið þetta allt, en ef einhver gerði það getur hann skrifað hetjusögu sína í skoðanir ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8